Randers enn á botninum án sigurs

Hannes Halldórsson í leik með Randers.
Hannes Halldórsson í leik með Randers. Ljósmynd/Twitter

Það gengur hvorki né rekur hjá Hannesi Halldórssyni og félögum í danska A-deildarfélaginu Randers. Liðið lék sinn sjötta leik í deildinni á leiktíðinni í kvöld og er það enn án sigurs eftir 1:1-jafntefli á heimavelli gegn Silkeborg. Ólafur Kristjánsson þjálfar Randers. 

Marcus Molvadgaard kom Randers yfir á 38. mínútu en Robert Skov jafnaði á 65. mínútu og þar við sat. 

Randers er enn í botnsætinu með aðeins þrjú stig eftir sex leiki og er eitt af aðeins tveimur liðum sem hefur ekki enn landað sigri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert