Eggert Gunnþór Jónsson lék loks sinn fyrsta deildarleik fyrir danska liðið SønderjyskE sem mátti þola 3:2-tap gegn FC Kaupmannahöfn á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Eggert kom til SønderjyskE frá Fleetwood Town í janúar síðastliðnum en hefur verið að glíma við meiðsli síðan og því ekkert leikið með liðinu þar til í dag. Eggert byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður á 55. mínútu í stöðunni 1:0 fyrir Kaupmannahöfn.
SønderjyskE snéri hins vegar taflinu við og var staðan 2:1, Eggerti og félögum í vil þar til tíu mínútur voru til leiksloka en þá skoruðu leikmenn FCK tvö mörk og tryggðu sér sigur.
SønderjyskE er í sjötta sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki.