Guðlaugur Victor Pálsson var í fyrsta skipti í byrjunarliði Zürich sem gerði markalaust jafntefli við Young Boys í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Guðlaugur lék allan leikinn.
Zürich er í toppsæti deildarinnar með 11 stig eftir fimm leiki en Basel á leik til góða og getur skotist á toppinn með sigri.