Kröftug byrjun Neymar hjá PSG

Neymar var atkvæðamikill í gær.
Neymar var atkvæðamikill í gær. AFP

Knattspyrnumaðurinn Neymar skoraði í öðrum leiknum í röð fyrir Paris Saint-Germain þegar liðið lagði Toulouse 5:2 á heimavelli í frönsku 1. deildinni. 

Gestirnir komust yfir á 19. mínútu, en lánsmaðurinn frá Bournemouth, Max Gradel, gerði fyrsta markið. Neymar var ekki lengi að jafna metin fyrir PSG, en hann skoraði 13 mínútum síðar. Adrien Rabiot var snöggur að koma heimamönnum yfir, skoraði fjórum mínútum síðar.

Neymar fiskaði víti um miðjan síðari hálfleik, en Edinson Cavani skoraði örugglega af punktinum. Gestirnir minnkuðu muninn með skallamarki eftir hornspyrnu. Heimamenn bættu tveimur mörkum við með stuttu millibili og Neymar gulltryggði sigurinn með marki í uppbótartíma eftir frábæra spilamennsku fram hjá varnarmönnum Toulouse, öruggur 5:2 sigur í höfn.

Eins og kunnugt er fór Neymar til PSG fyrir 222 milljónir evra frá Barcelona, en slíkt kaupverð hafði ekki áður sést í knattspyrnu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert