Þjálfari Kosóvó búinn að segja upp

Albert Bunjaku hefur sagt starfi sínu lausu.
Albert Bunjaku hefur sagt starfi sínu lausu. AFP

Albert Bunjaku hefur sagt upp starfi sínu sem þjálfari karlalandsliðs Kosóvó í knattspyrnu. Liðinu hefur gengið illa í undankeppni HM, en Kosóvó er í riðli með Íslandi og hefur aðeins eitt stig á botninum. Ísland hafði betur gegn Kosóvó á útivelli, 2:1 þegar liðin mættust í mars á þessu ári. 

Eina stig Kosóvó í riðlinum til þessa kom á heimavelli gegn Finnum er liðin gerðu 1:1-jafntefli en liðið er í fyrsta skipti í undankeppni HM. Ísland fær Kosóvó í heimsókn í lokaumferð riðilsins þann 9. október næstkomandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert