Markamet í fyrstu umferðinni

Chelsea skoraði 6 mörk í leiknum gegn Qarabag.
Chelsea skoraði 6 mörk í leiknum gegn Qarabag. AFP

Aldrei hafa verið skoruð fleiri mörk í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu sem lauk í gærkvöld.

Alls voru skoruð 54 mörk í leikjunum 16 eða 3,375 mörk að meðaltali. Tímabilið 2013-14 voru 53 mörk skoruð í fyrstu umferðinni.

Nokkrar stórar tölur sáust í leikjunum í gær og í fyrradag. Chelsea vann Qarabag, 6:0, Paris SG lagði skosku meistarana í Celtic, 5:0, og Manchester City skellti hollensku meisturunum í Feyenoord, 4:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert