Arnór lék fyrsta deildarleikinn

Arnór Sigurðsson í leik með Skagamönnum.
Arnór Sigurðsson í leik með Skagamönnum. Ljósmynd/facebook

Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir sænska liðið Norrköping sem gerði 1:1-jafntefli við Kalmar á útivelli í sænsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Hann kom inn á sem varamaður á 82. mínútu. 

Jón Guðni Fjóluson og Guðmundur Þórarinsson léku allan leikinn fyrir Norrköping en Alfons Sampsted sat allan tímann á varamannabekknum. Norrköping er í 5. sæti deildarinnar með 37 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert