Sagður hafa fallið á lyfjaprófi

Darijo Srna, til hægri, í leiknum gegn Napoli.
Darijo Srna, til hægri, í leiknum gegn Napoli. AFP

Króatíski landsliðsmaðurinn Darijo Srna leikmaður úkraínska liðsins Shakhtar Donetsk er sagður hafa fallið á lyfjaprófi en fjölmiðlar í Úkraínu og í Króatíu greina frá þessu í dag.

Srna, sem er 35 ára gamall og á að baki 135 leiki með króatíska landsliðinu, var tekinn í lyfjapróf eftir sigurinn á móti ítalska liðinu Napoli í Meistaradeildinni í síðustu viku og reyndist sýnið jákvætt en þessar fregnir hafa þó ekki verið staðfestar né hvaða lyf eiga að hafa fundist í sýninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert