Müller frá keppni næstu vikurnar

Thomas Müller.
Thomas Müller. AFP

Thomas Müller, framherji þýska meistaraliðsins Bayern München, verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Hamburg um nýliðna helgi.

Greint er frá því á heimasíðu Bayern München að Müller verði frá keppni næstu þrjár vikurnar en hann tognaði aftan í læri. Müller kom inn á sem varamaður í hálfleik og lagði upp mark fyrir Corentin Tolissos á 52. mínútu en þremur mínútum síðar haltraði hann af velli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert