Mikael skoraði í öðrum leiknum í röð

Mikael Neville Anderson.
Mikael Neville Anderson. Ljósmynd/Youtube

U21 árs landsliðsmaðurinn Mikael Anderson er að gera fína hluti með danska B-deildarliðinu Vendsyssel, en hann er í láni frá Midtjylland. Mikael skoraði í öðrum leiknum í röð í 4:2-sigrinum á Esbjerg á útivell í dag. 

Mikael hefur fimm leiki fyrir Vendsyssel og skorað í þeim þrjú mörk. Liðið er í þriðja sæti og í baráttu um sæti í efstu deild á næsta tímabili. 

Björn Daníel Sverrisson spilaði fyrstu 84 mínúturnar í 2:1-útisigri Vejle á Brabrand í sömu deild. Vejle er í toppsæti deildarinnar með 34 stig, fimm stigum meira en Vendsyssel. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert