Ronaldo trónir á toppnum

Cristiano Ronaldo hefur skorað flest mörk allra í Meistaradeildinni á …
Cristiano Ronaldo hefur skorað flest mörk allra í Meistaradeildinni á þessu tímabili. AFP

Portúgalinn Cristiano Ronaldo, leikmaður Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid, er markhæsti leikmaður Meistaradeildarinnar á þessu tímabili.

Ronaldo skoraði tvö mörk í stórsigri Real Madrid gegn APOEL í gær og hefur þar með skorað 8 mörk.

Þessir eru markahæstir:

8 - Christiano Ronaldo, Real Madrid
6 - Neymar, Paris SG
6 - Ben Yedder, Sevilla
6 - Harry Kane, Tottenham
5 - Roberto Firmino, Liverpool
5 - Edison Cavani, Paris SG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert