Robinho dæmdur í níu ára fangelsi

Robinho fagnar marki með AC Milan.
Robinho fagnar marki með AC Milan. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Robinho, sem hefur meðal annars leikið með Real Madrid, Manchester City og AC Milan, var í dag fundinn sekur um nauðgun sem átti sér stað á næturklúbbi í Mílanó árið 2013.

Dómstóll í Mílanó dæmdi Robinho, sem er 33 ára gamall, í níu ára fangelsi en hann og fimm aðrir karlar voru dæmdir fyrir að nauðga albanskri konu í janúar 2013. Robinho lék þá með AC Milan.

Robinho leikur með liði Atletico Mineiro í Brasilíu en sóknarmaðurinn á að baki 100 leiki með brasilíska landsliðinu og hefur í þeim skorað 28 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert