N'Golo Kante, leikmaður Englandsmeistara Chelsea, hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins í Frakklandi.
Miðjumaðurinn öflugi og vinnusami varð Englandsmeistari með Chelsea síðastliðið vor eftir að hafa hampað titlinum með Leicester árið 2016.
Kante hafði betur í baráttunni við Kylian Mbappe, leikmann Paris SG, og í þriðja sæti í kjörinu hafnaði Karim Benzema, framherji Real Madrid.