Daníel og Ásta með 11 mínútna forystu

Daníel og Ásta á fullri ferð norður Skógshraun.
Daníel og Ásta á fullri ferð norður Skógshraun. mbl.is/Guðmundur Karl

Forskot Daníels og Ástu Sigurðarbarna í alþjóðarallinu, Rally Reykjavík hefur aukist jafnt og þétt í dag. Þegar þriðja legg rallsins er lokið hafa þau tæplega ellefu mínútna forskot á þá Sigurð Óla Gunnarsson og Sigurð Inga Ljótsson sem eru í öðru sæti á Toyotu Celicu.

Þriðju eru Guðmundur Höskuldsson og Þórarinn Karlsson á Toyotu Corollu, 18 sekúndum á eftir Sigurði Óla. Í fjórða sæti eru Andy Drummond og John Chester á Land Rover Discovery en þeir leiða keppni í jeppaflokki.

Með sigri í rallinu tryggja þau Daníel og Ásta sér Íslandsmeistaratitilinn þegar einu móti er ólokið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert