Arnar Sigurðsson tapaði í 8 manna úrslitum á atvinnumannamóti í tennis sem fram fór í Mexíkó um liðna helgi. Arnar lék gegn Roman Borvanov frá Makedóníu og sigraði Borvanov í oddalotu. Fyrsta settið vann Borvanov, 7:6, Arnar vann næsta sett, 6:3 en í lokasettinu tapaði Arnar 6:0. Í þessari viku keppir Arnar á öðru atvinnumóti í Mexíkó en þar keppir hann við Lester Cook frá Bandaríkjunum sem er í sjötta sæti styrkleikalista mótsins.