Ingvar Þór Jóhannesson sigraði skoska stórmeistarann Colin McNab

Ingvar Þór Jóhannesson sigraði skoska stórmeistarann Colin McNab í 2. umferð meistaraflokks Kaupþingsmótsins í skák, sem fram fór í morgun og er efstur með 2 vinninga ásamt enska alþjóðlega meistaranum Robert Bellin.

Stórmeistarnir Miezis frá Lettlandi og Kveynis frá Litháen eru efstir í stórmeistaraflokki. Meðal úrslita má nefna að í stórmeistaraflokki gerði Guðmundur Kjartansson jafntefli við skoska stórmeistarann John Shaw og Róbert Harðarson sigraðiBjörn Þorfinnsson. Í meistaraflokki sigraði Snorri G. Bergsson (2296) Pólverjann Kazimierz Olszynski. Þriðja umferð fer fram í kvöld og hefst kl. 17. Teflt er í skákhöllinni, Faxafeni 12.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka