Vitkor og Telma sigursæl á meistaramótinu í fimleikum

Viktor Kristmannsson var sigursæll á Íslandsmeistaramótinu í fimleikum um helgina. stækka

Viktor Kristmannsson var sigursæll á Íslandsmeistaramótinu í fimleikum um helgina. Árni Sæberg

Viktor Kristmannsson og Telma Rut Hermannsdóttir voru sigursæl á Íslandsmeistaramótinu í fimleikum sem lauk í dag. Bæði unnu þau fjölþrautakeppnina í gær og tóku síðan upp þráðinn á sigurbrautinni í dag þegar keppendur reyndu með sér á einstökum áhöldum. Viktor vann þá fimm greinar af sex en Telma vann allar fjórar greinarnar í kvennaflokki. Keppt er á sex áhöldum í karlaflokki og Viktor vann til fyrstu verðlauna á fimm þeirra; gólfi, bogahesti, hringjum, tvíslá og svifrá. Hann náði öðru sæti á stökki en félagi hans úr Gerplu Ingvar Jochumsson hafði þar betur og vann gullið. Ingvar fékk silfur á bogahesti og bronsverðlaun á tvíslá og svifrá. Bróðir Ingvars, Brynjar Wilhelm Jochumsson náði öðru sæti á gólfi og á hringjum. Þar er svo sannarlega ungur og efnilegur fimleikamaður á ferð. Í þriðja sæti á gólfi og á hringjum var Ólafur Garðar Gunnarsson. Bræðurnir Hlynur og Dýri Kristjánssynir unnu einnig til verðlauna, Dýri fékk silfur á tvíslá og á svifrá og Hlynur náði bronsverðlaunum á stökki. Allir þessir fimleikamenn koma frá Gerplu. Jón Sigurður Gunnarsson, Ármanni fékk bronsverðlaun á bogahesti. Hjá stúlkunum var það Thelma Rut Hermannsdóttir sem átti mjög góðan dag en hún vann til gullverðlauna á öllum áhöldunum fjórum: stökki, tvíslá, slá og gólfi. Jóhanna Rakel Jónasdóttir, Ármanni, veitti Thelmu harða keppni á jafnvægisslá en þar hafnaði Jóhanna í öðru sæti og á gólfi náði Jóhanna Rakel bronsinu. Harpa Dögg Steindórsdóttir, Gerplu, vann til silfurverðlauna á tvíslá og Sigrún Dís Tryggvadóttir, Gerplu, vann til tvennra bronsverðlauna á mótinu; á stökki og á jafnvægisslá. Gróttustúlkurnar Dominiqua Belányi og Embla Jóhannesdóttir unnu einnig til verðlauna á mótinu. Dominiqua fékk bronsverðlaun á stökki og Embla sýndi glæsilegar gólfæfingar og uppskar þar silfur og á tvíslá fékk hún bronsverðlaun.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær

Mánudaginn 21. maí


finnur.is