Viktor og Thelma Rut sópuðu til sín verðlaunum
Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is
,,Er orðinn miklu sterkari“
Viktor tjáði Morgunblaðinu að mótinu loknu að hann væri stöðugt að bæta sig :,,Ég heft æft mjög vel og náð góðum tökum á mínum æfingum. Ég mætti því til leiks með gott sjálfstraust. Þetta eru náttúrlega æfingar sem ég hef verið að gera í eitt til tvö ár og kann þær orðið vel. Ég hef verið að vinna í því að fullkomna þær og þetta gekk mjög vel báða dagana,“ sagði Viktor, sem er tuttugu og þriggja ára og á hátindi síns ferils.Mæðgur Íslandsmeistarar
Thelma Rut Hermannsdóttir fór ósigruð í gegnum kvennaflokkinn því hún sigraði bæði í fjölþrautinni og á öllum fjórum áhöldum. Frábært afrek hjá Thelmu, sem var að hampa sínum fyrstu Íslandsmeistaratitlum, enda aðeins á fimmtánda ári. Hún var hógværðin uppmáluð í samtali við Morgunblaðið: ,,Ég reyndi bara að gera mitt besta og það bara endaði svona. Við erum margar sem erum mjög jafnar að getu þannig að ég bjóst kannski ekki alveg við þessu,“ sagði Thelma sem segir gólfæfingar og stökk hafa verið hápunktana hjá sér á mótinu: ,,Ég hef lengst af verið sterkust í gólfæfingum. Það hefur alltaf verið mín grein en það má kannski segja að ég sé í mestri framför í stökki.“
Sjá ítarlega umfjöllun um Íslandsmótið í fimleikum í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






