Anand vann Kramnik

Viswanathan Anand.
Viswanathan Anand. Reuters

Viswanathan Anand vann Vladímír Kramnik í fimmtu einvígisskák þeirra um heimsmeistaratitilinn í skák í Bonn í dag og hefur nú náð tveggja vinninga forskoti: 3½-1½. Sjötta skákin verður tefld á  morgun og hefst klukkan 13. 

Anand hafði svart og fórnaði manni í 34 leik með þeim árangri að Kramnik varð að játa sig sigraðan í næsta leik. 

Hægt er að fylgjast með einvíginu á fréttavefnum Skák.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert