Karatemenn fjölmenna til Malmö

Á meðfylgjandi mynd má sjá landslið Íslands í karate; Efri röð frá vinstri, Andri Sveinsson ... stækka

Á meðfylgjandi mynd má sjá landslið Íslands í karate; Efri röð frá vinstri, Andri Sveinsson landsliðsþjálfari í kumite, Arnór Ingi Sigurðsson, Elías Snorrason, Davíð Freyr Guðjónsson, Ragnar Eyþórsson, Kristján Helgi Carrasco, Jóhannes Gauti Óttarsson, Birkir Indriðason og Magnús Kr. Eyjólfsson landsliðsþjálfari í kata. Í neðri röð frá vinstri; Kristján Ó. Davíðsson, Kristín Magnúsdóttir, Telma Rut Frímannsdóttir, Aðalheiður Rósa Harðardóttir og Heiðar Benediktsson. Ljósmynd/Karatesamband Íslands

Íslenska landsliðið í karate tekur þátt í Opna sænska meistaramótinu sem fram fer í Malmö um næstu helgi. Ferðin er liður í undirbúning landsliðsins fyrir Norðurlandameistaramótið sem haldið verður 16. og 17. apríl í Tampere Finnlandi. 

Yfir 700 keppendur eru skráðir til leiks á Opna sænska meistaramótið frá 13 löndum og hefur mótið aldrei verið sterkara heldur en í ár og fjöldi landsliðsmanna skráður til leiks. 

Íslenska landsliðið í karate keppti á þessu móti fyrir ári síðan og kom heim með 12 verðlaun, þar af tvenn gullverðlaun.   Auk landsliðsins senda nokkur íslensk félög keppendur  til leiks í  Malmö en íslenski hópurinn telur í heild um 25 keppendur ásamt liðsstjórum og dómurum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is