Ingvar: Ég hefði viljað gera betur

Landsliðsfyrirliðinn Ingvar Þór Jónsson, sagði úrslitin gegn Króatíu ekki gefa rétta mynd af getu liðanna en Ísland tapaði 0:9 fyrir Króötum í Zagreb í kvöld í 2. deild heimsmeistaramótsins í íshokkí.

Ingvar benti á að leikmenn Íslandi hafi verið talsvert mikið utan vallar vegna brottvísana og sagði Króatana hafa nýtt sér þá stöðu ótrúlega vel.

Ingvar sagði jafnframt að Króatar væru hugsanlega með sterkasta liðið í riðlinum,  í það minnsta með annað af tveimur sterkustu liðunum.

Ingvari fannst íslenska liðið vera nokkuð frá sínu besta og þar gæti stress
í kringum fyrsta leik hafa spilað inn í. Hann sagði að íslenska liðið ætti að geta haldið pökknum betur innan liðsins og minnka þar með hættuna á því að andstæðingarnir skori. 

Ingvar Þór Jónsson fyrirliði Íslands.
Ingvar Þór Jónsson fyrirliði Íslands. mbl.is/Kristján Maack
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert