Íþróttir
| mbl
| 6.11.2011
| 20:26
| Uppfært
20:50
Anna Soffía og Sighvatur meistarar
Íslandsmeistaramótið í brasilísku Jiu Jitsu fór fram í dag fjórða árið í röð en keppendur í ár voru rúmlega fimmtíu talsins frá 6 félögum. Svo fór að Sighvatur Magnús Helgason í Mjölni og Anna Soffía Víkingsdóttir í Ármanni stóðu uppi sem sigurvegarar í opnum flokkum karla og kvenna.
Bardagaklúbburinn Mjölnir var sigursælastur á mótinu og m.a. röðuðu Mjölnismenn sér í þrjú efstu sætin í opnum flokki karla.
Íslandsmeistarar síðustu ára í opnum flokkum karla og kvenna, þau Gunnar Nelson og Auður Olga Skúladóttir voru hvorugt með að þessu sinni þar sem þau dveljast bæði erlendis við æfingar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






