Þormóður féll snemma úr leik í Amsterdam

Þormóður Jónsson. stækka

Þormóður Jónsson. mbl.is/Brynjar Gauti

Júdókappanum Þormóði Jónssyni tókst ekki að fylgja eftir frábærum árangri sínum frá því á móti á Samoa um síðustu helgi á Grand Prix-mótinu í Amsterdam í gær. Þar féll hann úr keppni í fyrstu umferð þegar sem hann mætti Marius Paskevicius frá Litháen, en kappinn sá er í 18. sæti á heimslistanum en Þormóður er í 53. sæti.

Paskevicius komst alla leið í úrslit á mótinu í gær og glímdi þar við Andreas Toelzer frá Þýskalandi og hafði sá þýski betur.

Mótið í Amsterdam var gríðarlega sterkt en þar voru 405 keppendur frá 64 þjóðlöndum. Í hópi keppenda voru meðal annarra 22 sem unnið höfðu til verðlauna á Ólympíuleikum, þar af sex gullverðlaunahafar, 59 höfðu unnið til verðlauna á heimsmeistaramóti og 21 þeirra orðið heimsmeistari þannig að ljóst má vera að mótið var mjög sterkt.

skuli@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is