SR sigraði Björninn í fjörugum leik

Frá leik SR og Bjarnarins í kvöld. stækka

Frá leik SR og Bjarnarins í kvöld. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

SR og Björninn áttust við á Íslandsmóti karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal klukkan 20:15. SR sigraði 5:3 eftir að hafa lent 2:3 undir fyrir síðusta leikhlutann. Annar sigur SR á Birninum á skömmum tíma. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is. 

Mörk/stoðsendingar SR: Björn Róbert Sigurðsson 2/0, Daniel Kolar 1/3, Robbie Sigurðsson 1/1, Egill Þormóðsson 1/0, Gauti Þormóðsson 0/2, Snorri Sigurbjörnsson 0/1.

Mörk/stoðsendingar Björninn: Ólafur Hrafn Björnsson 2/0, Falur Birkir Guðnason 1/0, Matthías Skjöldur Sigurðsson 0/1, Gunnar Guðmundsson 0/1, Brynjar Bergmann 0/1, Steindór Ingason 0/1.

60. mín: Leiknum er lokið með sigri SR 5:3 og Akureyringar eiga þá einn möguleika á því að komast í úrslitakeppnina þó líklegast sé að SR og Björninn muni eigast við í úrslitum. 

58. mín: Staðan er 5:3 fyrir SR. Björn Róbert Sigurðsson var að innsigla sigur SR með öðru marki sínu í leiknum eftir stoðsendingu frá Daniel Kolar.

56. mín: Staðan er 4:3 fyrir SR. Gauti Þormóðsson var að skjóta í stöngina á marki Bjarnarins úr góðu færi.

55. mín: Staðan er 4:3 fyrir SR. Steindór Ingason hjá Birninum var að fá tveggja mínútna brottvísun. SR-ingar hafa verið eitraðir í þessari stöðu í kvöld og nú gætu þeir innsiglað sigurinn með marki. 

54. mín: Mark! Staðan er 4:3 fyrir SR. Falur Birkir Guðnason hjá Birninum fékk tveggja mínútna brottvísun fyrir brot á Gauta Þormóðssyni sem virtist vera stórslasaður miðað við látbragðið. Hann þurfti þó ekki að fara út af og SR-ingar voru aðeins fimm sekúndur að nýta sér liðsmuninn eins og þeir hafa þrívegis gert í leiknum. Að þessu sinni skoraði markahrókurinn Egill Þormóðsson eftir stoðsendingu frá Robbie Sigurðssyni.

48. mín: Mark! Staðan er 3:3. SR-ingar voru klókir og náðu að jafna metin eftir að þeir fengu Robbie inn á aftur en Gunnar átti aðeins þrjár sekúndur eftir af sinni kælingu. Björn Róbert Sigurðsson skoraði eftir undirbúning Daniels Kolars og Gauta Þormóðssonar.

46. mín: Staðan er 3:2 fyrir Björninn. Gunnar Guðmundsson í Birninum var að fá brottvísun og nú er því jafnt í liðum. 

45. mín: Staðan er 3:2 fyrir Björninn. Robbie Sigurðsson var að fá brottvísun í annað skiptið í leiknum hjá SR. Nú er spurning hvernig Bjarnarmenn spila manni fleiri.

43. mín: Staðan er 3:2 fyrir Björninn og síðasti leikhlutinn er farinn af stað. Pétur Maack mun ekki taka meiri þátt í leiknum en hann fór meiddur út af og er á leiðinni upp á spítala. Líklega er um viðbeinið eða öxlina að ræða hjá Pétri.

40. mín: Staðan er 3:2 fyrir Björninn að loknum öðrum leikhluta. Sá þriðji og síðasti ætti að verða fjörugur og spennandi. Eftir markalausan fyrsta leikhluta og buðu liðin upp á mun meira fjör í öðrum leikhluta og mörkin eru orðin fimm. Athygli vekur að einungis tvívegis hafa leikmenn verið sendir í kælingu, einn úr hvoru liði. 

35. mín: Mark! Staðan er 3:2 fyrir Björninn. Eftir skyndisókn skoraði Falur Birkir Guðnason eftir undirbúning Brynjars Bergmanns og Steindórs Ingasonar. 

34. mín: Mark! Staðan er 2:2. SR tókst að nýta sér liðsmuninn og jafna. Daniel Kolar skoraði eftir undirbúning frá Gauta Þormóðssyni og Snorra Sigurbjörnssyni. 

34. mín: Staðan er 2:1 fyrir Björninn. Robbie Sigurðsson átti góða rispu fyrir SR en Ingi Þór markvörður Bjarnarins varði. Einar Sveinn Guðnason var að fá tveggja mínútna brottvísun hjá Birninum. 

32. mín: Staðan er 2:1 fyrir Björninn. SR tapaði pökknum í sókninni og Brynjar Bergmann slapp aleinn inn fyrir og komst einn á móti Ævari markverði sem varði glæsilega. 

29. mín: Mark! Staðan er 2:1 fyrir Björninn. Nú er heldur betur skammt stórra högga á milli. Aðeins tíu sekúndur liðu á milli markanna. Ólafur Hrafn Björnsson skoraði aftur en að þessu sinni eftir stoðsendingu frá Gunnari Guðmundssyni sem er að leika sinn fyrsta leik fyrir Björninn á tímabilinu en hann er einn þeirra þriggja sem léku með Amager í Danmörku fyrir áramót. 

29. mín: Mark! Staðan er 1:1. Ólafur Hrafn Björnsson skoraði auðveldlega af stuttu færi eftir laglegan undirbúning Matthíasar Skjaldar Sigurðssonar. 

23. mín: Mark! Staðan er 1:0 fyrir SR. Robbie Sigurðsson skoraði af stuttu færi og SR-ingar eru búnir að taka forystuna. Nú lifnar vonandi yfir leiknum. 

20. mín: Staðan er 0:0 að loknum fyrsta leikhluta. Bjarnarmenn hafa verið beittari í  hingað til og hafa fengið nokkur færi en ekki fundið leiðina framhjá Ævari markverði SR. Vörnin fyrir framan Ævar er hins vegar ekkert sérstaklega traustvekjandi. 

17. mín: Staðan er 0:0. Birninum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og settu SR-inga í raun ekki undir neina sérstaka pressu.

15. mín: Staðan er 0:0 og enn hefur liðunum ekki tekist að skora. Fyrsta brottvísunin var hins vegar að eiga sér stað og það er Robbie Sigurdson SR sem verður út af næstu tvær mínúturnar. 

10. mín: Staðan er 0:0. Liðin hafa ekki gefið mörg færi á sér enn sem komið er. Besta færi SR hingað til fékk Pétur Maack en Ingi Þór Ólafsson markvörður Bjarnarins varði frá honum.

5. mín: Staðan er 0:0. Leikurinn hófst klukkan 20:23 en ekki 20:15 eins og áætlað var. Leikurinn er hraður á fyrstu mínútunum og eitt ágætt marktækifæri hefur litið dagsins ljós. Sigursteinn Sighvatsson var þá aðgangsharður í tvígang upp við mark SR en Ævar Þór Björnsson sá við honum. 

SR frumsýnir nýjan bláan búning í kvöld sem minnir óneitanlega á búninga New York Rangers. Björninn leikur í hvítu. 

Björninn leikur án markvarðarins Styrmis Snorrasonar sem meiddist í vikunni.

Björninn teflir fram þremur leikmönnum sem allir eru vel kunnir hjá félaginu en léku fyrir áramót í Danmörku. Það eru þeir Gunnar Guðmundsson, Róbert Freyr Pálsson og Úlfar Jón Andrésson. 

SR hefur endurheimt Robbie Sigurðsson sem var erlendis þegar liðin léku á dögunum en þá var auk þess fyrirliðinn Steinar Páll Veigarsson í leikbanni. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is