Íþróttamenn ganga inn á leikvanginn

Alexandros Nikolaidis bar fána Grikklands fyrstur inn á leikvanginn.
Alexandros Nikolaidis bar fána Grikklands fyrstur inn á leikvanginn. AFP

Íþróttamennirnir koma nú inn á ólympíuleikvanginn í London. Gríska liðið gekk fyrst inn að vanda samkvæmt hefð. Um 10.600 keppendur frá 205 löndum taka þátt í ár. Í fyrsta sinn eru konur í liðum allra keppnislanda.

Keppendur koma svo inn í stafrófsröð landa sinna. Síðastir í röðinni verða gestgjafarnir, Bretar.

Fánaberar hvers lands vekja yfirleitt eftirtekt en sá sem fær þann heiður er oft sigursælasti keppandi viðkomandi lands.

27 íslenskir keppendur taka þátt í Ólympíuleikunum í London.

Alsír.
Alsír. AFP
Keppendur Bahrain voru skrautlegir.
Keppendur Bahrain voru skrautlegir. AFP
Austurríki.
Austurríki. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert