Djokovic og Federer mætast í undanúrslitum

Novak Djokovic.
Novak Djokovic. AFP

Serbinn Novak Djokovic og Svisslendingurinn Roger Federer mætast í undanúrslitum á Monte Carlo meistaramótinu í tennis.

Djokovic, sem á titil að verja, hafði betur á móti Spánverjunum Guillermo Garcia-Lopez í dag, 4:6, 6:3 og 6:1.

Federer hafði betur á móti Frakkanum Jo-Wilfried Tsonga, 2:6, 7:6 og 6:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert