Ferrer hafði betur gegn Nadal

David Ferrer mundar tennisspaðann.
David Ferrer mundar tennisspaðann. AFP

Spánverjinn David Ferrer hafði betur gegn landa sínum Rafael Nadal þegar þeir áttust við í átta manna úrslitum á  Monte Carlo meistaramótinu í tennis í dag.

Nadal, sem er í efsta sæti á heimslistanum, mátti sætta sig við tap í tveimur settum, 7:6 og 6:4, en hann stefndi á að vinna mótið í níunda skiptið á ferlinum. Ferrer hafði fyrir leikinn í dag tapað 10 viðureignum í röð fyrir Nadal.

Ferrer mætir Svisslendingnum Stanislas Wawrinka í undanúrslitum en Wawrinka vann Nadal í úrslitaleik á opna ástralska meistaramótinu í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert