Silfur og brons hjá strákunum á Norðurlandamótinu

Jón Sigurður Gunnarsson.
Jón Sigurður Gunnarsson. mbl.is/Ómar

Jón Sigurður Gunnarsson og  Eyþór Örn Baldursson unnu í dag báðir til verðlauna á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum sem haldið er í Halmstad í Svíþjóð.

Jón Sigurður vann til silfurverðlauna í karlaflokki fyrir æfingar sínar í hringjum í úrslitunum í dag og Eyþór Örn, Íslandsmeistari unglinga, hlaut bronsverðlaun fyrir æfingar sínar í hringjunum í unglingaflokki.

Í gær vann kvennalandsliðið til bronsverðlauna í liðakeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert