Thelma með tvö Íslandsmet í viðbót

Thelma Björg Björnsdóttir sundkona.
Thelma Björg Björnsdóttir sundkona. Ljósmynd/ÍF

Thelma Björg Björnsdóttir setti í dag tvö Íslandsmet í S6, fötlunarflokki hreyfihamlaðra á Opna breska meistaramóti fatlaðra í sundi í Glasgow. Thelma synti 200m fjórsund og setti tvö Íslandsmet í sama sundinu.

Thelma synti 200m fjórsundið á 3:41,93 mín og setti Íslandsmet í greininni. Um leið bætti hún líka Íslandsmetið í 50m flugsundi.

Thelma hafði áður á mótinu sett Íslandsmet í 100m og 50m bringusundi í S6 fötlunarflokknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert