Brynjar: Verðum að laga móttökuna

„Við verðum að laga móttökuna hjá okkur,“ sagði Brynjar Pétursson, fyrirliði HK, eftir tapið á móti Stjörnunni í Garðabænum í gærkvöldi er liðin mættust í fjórða sinn í úrslitarimmunni í Mikasadeild karla í blaki.

„Við verðum búnir að laga hana á laugardaginn og ætlum okkur ekkert annað en sigur á okkar heimavelli,“ sagði Brynjar sem var ekki nægilega sáttur við leik liðsins í síðustu tveimur leikjum. En oddaleikurinn er eftir og sagði Brynjar alveg ljóst að HK myndi sigra þar enda stefndi liðið á að sigra þrefallt annað árið í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert