Ronaldo orðinn góður í hnénu

Portúgalski fótboltamaðurinn Cristiano Ronaldo segist tilbúinn í slaginn fyrir Real Madrid í haust. Hann segist hafa jafnað sig í hnénu. 

„Ég mun reyna mitt besta á næsta tímabili, líkt og ég geri á hverju ári. Ég geri mitt besta, hjálpa liðinu mínu, reyni að skora mörk og vinna titla,“ segir Ronaldo sem er 29 ára. Hann segist eiga von á því að geta spilað í að minnsta kosti 6-7 ár til viðbótar.

Frammistaða Portúgals á heimsmeistaramótinu í Brasilíu hefur verið gagnrýnd. Þeir unnu einn leik, töpuðu öðrum og gerðu jafntefli í þeim þriðja. Ronaldo var meiddur og skoraði aðeins eitt mark. 

„Ég er mjög einbeittur. Meiðslin eru horfin. Mér líður mjög, mjög vel.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert