Jóhann og Kolbeinn komust ekki áfram

Kolbeinn Höður Gunnarsson og Jóhann Björn Sigurbjörnsson komust ekki áfram …
Kolbeinn Höður Gunnarsson og Jóhann Björn Sigurbjörnsson komust ekki áfram í undanúrslitin. Eva Björk Ægisdóttir

Jóhann Björn Sigurbjörnsson og Kolbeinn Höður Gunnarsson komust ekki áfram upp úr undanrásum í 200 metra hlaupi á heimsmeistaramóti unglinga í Eugene í Bandaríkjunum.

Kolbeinn Höður hljóp í fjórða undanriðli og kom þriðji í mark á tímanum 21,44 sekúndum, sem er 7/100 úr sekúndu frá hans besta tíma.

Jóhann Björn hljóp í áttunda undanriðli og kom fimmti í mark, en tími hans var 21,59 sekúndur.

Efstu tveir í hverjum riðli komust áfram í undanúrslit ásamt sex næstu með bestu tímana, sem féll ekki í hlut þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert