Tour de Ormurinn haldin í þriðja sinn

Tour de Ormurinn fer fram 9. ágúst næstkomandi.
Tour de Ormurinn fer fram 9. ágúst næstkomandi. Ljósmynd/UÍA

Hjólreiðakeppnin Tour de Ormurinn fer fram í þriðja sinn laugardaginn 9. ágúst en í keppninni er að vanda hjólað umhverfis Lagarfljótið. Keppnisvegalengdirnar eru tvær, 68 km hringur og 103 km hringur.

Keppt verður í flokkum karla og kvenna í báðum vegalengdum. Í þeirri styttri verður hægt að taka þátt í liðakeppni þar sem þrír einstaklingar keppa saman. 

Í fyrra sigraði Þórarinn Sigurbergsson í 103 km keppninni á tímanum 3:49,55 klst og setti þar með brautarmet. Í 68 km vegalengdinni sigraði Hafliði Sævarsson á tímanum 2:30,19 og setti þar einnig brautarmet. Í 68 km kvennaflokki sigraði Stefanía Gunnarsdóttir á tímanum 2:59,14. Í liðakeppninni sigruðu Hilmar Gunnlaugsson, Sigurður Magnússon og Ívar Ingimarsson á tímanum 2:39,28

Ræst verður kl. 9:00 á laugardagsmorgun við þjóðveg 1 fyrir neðan N1 á Egilsstöðum og hjólað útí fell og þaðan í kringum Lagarfljótið. Í styttri hringnum er beygt yfir Jökulsá í Fljótsdal, neðan við Hengifoss, en í lengri hringnum er haldið áfram alla leið inn í dalbotn í Fljótsdal. Endamark er á sama stað og keppnin er ræst.

Það eru Austurför, UÍA og sveitarfélagið Fljótsdalshérað sem standa að keppninni. Skráning og nánari upplýsingar eru á www.traveleast.is og á www.facebook/tourdeormurinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert