Ingibjörg í 31. sæti

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir lýkur keppni á EM á morgun.
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir lýkur keppni á EM á morgun. Ljósmynd/sundsamband.is

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr SH varð í 31. sæti í 50 metra baksundi á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug í Berlín í morgun.

Ingibjörg kom í bakkann á 29,52 sekúndum og varð í 9. sæti af 10 keppendum í sínum riðli. Síðasti keppandi inn í 16 manna undanúrslitin kom í bakkann á 29,05 sekúndum.

Síðasta grein Ingibjargar á mótinu er 50 metra skriðsund á morgun. Þá keppir Hrafnhildur Lúthersdóttir einnig í 50 metra baksundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert