Ísland á fyrsta Smáþjóðamótið í karate

Keppendur ásamt landsliðsþjálfurum, frá vinstri: Magnús Eyjólfsson, Laufey Lind Sigþórsdóttir, …
Keppendur ásamt landsliðsþjálfurum, frá vinstri: Magnús Eyjólfsson, Laufey Lind Sigþórsdóttir, Katrín Ingunn Björnsdóttir, Edda Kristín Óttarsdóttir, Jóhannes Gauti Óttarsson, Svana Katla Þorsteinsdóttir, Elías Snorrason, Telma Rut Frímannsdóttir, Bogi Benediktsson og Gunnlaugur Sigurðsson. Ljósmynd/KAÍ

Ísland sendir átta keppendur á fyrsta Smáþjóðamótið í karate sem fram fer í Lúxemborg á laugardaginn. Sjö þjóðir taka þátt og verða keppendur um 240 talsins.

Þetta verður í fyrsta sinn sem mótið er haldið en þátttökuþjóðirnar eru þær sömu og keppa venjulega á Smáþjóðaleikunum sem haldnir eru annað hvert ár.

Keppendurnir koma frá Andorra, Kýpur, Lúxemborg, Möltu, Mónakó, San Marínó og Íslandi.

Keppt verður í kata og kumite, í flokkum unglinga og fullorðinna.

Landslið Íslands skipa:
Bogi Benediktsson, Þórshamri
Edda Kristín Óttarsdóttir, Fylki
Elías Snorrason, KFR
Jóhannes Gauti Óttarsson, Fylki
Katrín Ingunn Björnsdóttir, Fylki
Laufey Lind Sigþórsdóttir, Breiðablik
Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik
Telma Rut Frímannsdóttir, Afturelding

Auk þeirra fara landsliðsþjálfararnir Magnús Eyjólfsson og Gunnlaugur Sigurðsson, Sigþór Samúelsson sem fararstjóri og dómararnir Helgi Jóhannesson, Pétur Freyr Ragnarsson og Reinharð Reinharðsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert