SA sigraði Björninn

SA fagnaði sigri á Birninum í kvöld.
SA fagnaði sigri á Birninum í kvöld. mbl.is/Golli

Skautafélag Akureyrar hafði í kvöld betur gegn Birninum í Íslandsmóti karla í íshokkí í leik sem lauk 6:3 fyrir SA. SA hefur 10 stig í deildinni eftir fjóra leiki en Björninn 5 stig eftir jafn marga leiki. SA komst í 6:0 í kvöld en Björninn lagaði stöðu sína með því að skora þrjú mörk og minnka muninn í 6:3.

Mörk/stoðsendingar SA:
Ingþór Árnason 2/0
Ben Dimarco 1/2
Jóhann Leifsson 1/2
Rúnar Rúnarsson 1/1
Hilmar Leifsson 1/0
Sigurður Reynisson 0/1

Mörk/stoðsendingar Bjarnarins:
Lars Foder 1/1
Hjalti Friðriksson 1/0
Birkir Árnason 1/0
Nicolas Antonoff 0/1
Úlfar Andrésson 0/1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert