Pólverjar heimsmeistarar í blaki

Leikmenn pólska landsliðsins fagna sigri á heimsmeistaramótinu í blaki í …
Leikmenn pólska landsliðsins fagna sigri á heimsmeistaramótinu í blaki í gær eftir að hafa unnið Brasilíu í úrslitaleik. AFP

Pólverjar urðu í gærkvöld heimsmeistarar karla í blaki eftir 3:1-sigur á Brasilíu í úrslitaleik HM sem fram fór í Póllandi. Þetta er í annað sinn sem Pólverjar fagna heimsmeistaratitli karla í blaki en Brasilía hafði unnið síðustu þrjú mót.

Brasilía byrjaði úrslitaleikinn betur og vann fyrstu hrinuna 25:18 en Pólverjar jöfnuðu í 1:1 með því að vinna þá næstu 25:22. Þriðja hrinan var einnig jöfn en hana unnu Pólverjar 25:23 og unnu svo fjórðu hrinuna 25:22 sem tryggði Pólverjum heimsmeistaratitilinn í fyrsta sinn frá árinu 1974 í Mexíkó.

Mika Mateusz var stigahæstur Pólverja með 22 stig en Wallace de Souza og Ricardo Lucarelli skoruðu 18 stig hvor fyrir Brasilíu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert