Titilvörn Lilju Lindar í Svíþjóð

Norðurlandameistarinn Lilja Lind Helgadóttir.
Norðurlandameistarinn Lilja Lind Helgadóttir. mbl.is/Eggert

Unglingalandslið Íslands keppir á Norðulandamóti í Ólympískum lyftingum í Landskrona í Svíþjóð um helgina. 60 keppendur taka þátt í mótinu og koma níu þeirra frá Íslandi.

Lilja Lind Helgadóttir á titil að verja í mótinu en hún varð Norðurlandameistari í fyrra.

Íslensku keppendurnir eru í flokki 20 ára og yngri.

Konur:
Sólveig Sigurðardóttir
Freyja Mist Ólafsdóttir
Auður Ása Maríasdóttir
Lilja Lind Helgadóttir

Karlar:
Emil Ragnar Ægisson
Guðmundur Högni Hilmarsson
Högni Hjálmtýr Kristjánsson
Hilmar Örn Jónsson
Stefán Velemir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert