HK á sigurbraut

Þorvaldur Örn Kristmundsson

HK vann Stjörnuna með þremur hrinum gegn einni í Mizunodeild kvenna í blaki í kvöld en leikið var í Fagralundi. HK vann tvær fyrstu hrinurnar í leiknum, 25:26 og 25:22 áður en Stjörnuliðið beit frá sér. 

Stjarnan vann þriðju hrinu örugglega, 25:14, en lánaðist ekki að fylgja því eftir og HK hafði betur í fjórðu hrinu, 25:16, og þar með leikinn 3:1.

Laufey Björk Sigmundsdóttir var stigahæst hjá HK með 17 stig og Guðbjörg Valdimarsdóttir gerði 13 stig.  Ásthildur Gunnarsdóttir skoraði 13 stig fyrir Stjörnuliðið og Nicole Hannah Johansen og Ísabella Sævarsdóttir voru næstar með sex stig hvor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert