Þrjú aldursflokkamet féllu á 1. Jólamóti ÍR 2014. Andrea Kolbeinsdóttir ÍR setti nýtt aldursflokkamet í 15 ára flokki í 3000 m hlaupi. Andrea hljóp á 10:13,08 mín og bætti sinn fyrri árangur um tæpar 40 sekúndur.
Aníta Hinriksdóttir hljóp með Andreu fyrstu 2000 metrana en Aníta átti fyrra metið í flokknum, 10:29 mín.
Guðni Valur Guðnason ÍR bætti aldursflokkamet Sindra Lárussonar ÍR í kúluvarpi pilta 18-19 ára með kasti upp á 17.40m. Met Sindra var 17.34m en Sindri var að þessu sinni einn af dómurum kúluvarpskeppninnar.
Þá bætti Gunnar Guðmundsson ÍR aldursflokkamet Einars Daða Lárusson ÍR í 300m hlaupi þegar hann hljóp á 35,76 sek og bætti sig verulega. Gamla metið var 36.11.
Ívar Kristinn Jasonarson ÍR náði næstbesta tíma frá upphafi í karlaflokki innanhúss í 300m hlaupi þegar hann sigraði á 34,93 sek en Íslandsmet Trausta Stefánssonar FH er 34.64.
Tristan Freyr Jónsson ÍR keppti í fjórum greinum og bætti sín persónulegu met í þeim öllum og hjó nærri piltameti Einars Daða Lárussonar ÍR í 60m grindahlaupi 16-17 ára pilta þegar hann hljóp á 8.30sek en met Einars er 8.26.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir ÍR hljóp 300m á 41,86 sek en það er næstbesti árangur í þeirri grein frá upphafi í flokki 13 ára stúlkna.
Óðinn Björn Þorsteinsson Ármanni sigraði í kúluvarpi karla með 17.87m kasti og Dórthea Jóhannesdóttir ÍR sigraði í langstökki kvenna með 5.50m stökki.