Martin og Eygló íþróttafólk Reykjavíkur

Margrét Elíasdóttir, móðir Martins Hermannssonar, og Eygló Ósk Gústafsdóttir með …
Margrét Elíasdóttir, móðir Martins Hermannssonar, og Eygló Ósk Gústafsdóttir með verðlaunin í Ráðhúsinu í dag. mbl.is/Þórður Arnar

Martin Hermannsson, körfuknattleiksmaður úr KR, og Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi, voru valin íþróttakarl og íþróttakona Reykjavíkur fyrir árið 2014 en Íþróttabandalag Reykjavíkur tilkynnti þetta í móttöku síðdegis, í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.

Martin varð Íslandsmeistari með KR liðinu í ár ásamt því að vera í landsliði Íslands sem tryggði sér þátttökurétt í úrslitakeppni EM í fyrsta skipti í sögunni. 

Eygló er í 11.sæti á heimslistanum og 5. sæti á Evrópulistanum í 200 metra baksundi í 25 metra laug. 

Kvennalið Vals í handknattleik var valið íþróttalið Reykjavíkur 2014 en það varð bæði Íslands- og bikarmeistari á síðasta keppnistímabili.

Þá fengu tíu einstaklingar verðlaun fyrir árangur á árinu 2014:

Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR
Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Sundfélaginu Ægi
Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Sundfélaginu Ægi
Helga María Vilhjálmsdóttir, skíðakona úr ÍR
Helgi Sveinsson, frjálsíþróttamaður úr Ármanni
Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingamaður úr Ármanni
Martin Hermannsson, körfuknattleiksmaður úr KR
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR

Tíu lið voru jafnframt verðlaunuð fyrir sinn árangur:

ÍR - Bikarmeistarar í frjálsum íþróttum karla og kvenna
ÍR - Íslands- og bikarmeistarar í keilu karla
Júdófélag Reykjavíkur - Bikarmeistarar í sveitakeppni karla
Keilufélag Reykjavíkur - Íslands- og bikarmeistarar í keilu kvenna
KR - Bikarmeistarar í knattspyrnu karla
KR - Íslandsmeistarar í körfuknattleik karla
TBR - Íslandsmeistarar í liðakeppni beggja kynja í badminton
Valur - Íslands- og bikarmeistarar í handknattleik kvenna
Víkingur - Íslandsmeistarar í karlaflokki í karate
Víkingur - Íslands- og bikarmeistarar í liðakeppni karla og kvenna í borðtennis

Valskonur voru heiðraðar sem íþróttalið ársins í Reykjavík.
Valskonur voru heiðraðar sem íþróttalið ársins í Reykjavík.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert