Serena Williams tryggði sér í dag sæti í úrslitaleiknum á opna ástralska mótinu í tennis, fyrsta risamóti ársins. Þar mætir hún Mariu Sharapovu.
Willimas sigraði Madison Keys í tveimur settum í seinni undanúrslitaviðureigninni 7:6 og 6:2.
Serena Williams er 33 ára gömul og hefur unnið átján risatitla á ferlinum. Hún viðurkenndi á blaðamannafundi að leiknum loknum að hún hafi ekki reiknað með því að komast í úrslitaleik mótsins eftir að hafa fengið snert að flensu sem reið yfir keppendur mótsins.