HK-konur unnu Stjörnuna

HK vann Stjörnuna.
HK vann Stjörnuna. mbl.is/Golli

HK lagði Stjörnuna að velli, 3:1, í efstu deild kvenna í blaki á föstudagskvöldið en liðin mættust þá í Fagralundi í Kópavogi.

Stjarnan vann fyrstu hrinuna 25:22 en HK tók síðan leikinn í sínar hendur og vann næstu þrjár og þar með leikinn, 25:15, 25:23 og 25:18.

Guðbjōrg Valdimarsdóttir, Ingibjörg  Gunnarsdóttir og Laufey Sigmundsdóttir voru allar með 14 stig fyrir HK. Stigahæst í Stjōrnunni Elsa Sæný Valgeirsdóttir, þjálfari karlaliðs HK, með 14 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert