Helena Sverrisdóttir skoraði níu stig fyrir Polkowice þegar liðið tapaði fyrir Artego Bydgoszcz í hörkuslag í pólsku úrvalsdeilinni í körfuknattleik en lokatölur urðu 57:66.
Helena var næststigahæst í sínu liði líkt og um síðustu helgi en hún átti tvær stoðsendingar og fimmfráköst.
Tapið hjá Polkowice var það sjötta á leiktíðinni en liðið er í 4. sæti deildarinnar með 30 stig. Artego er hins vegar í 2. sæti deildarinnar með 33 stig.