HK lagði KA í tvígang

HK-stúlkur á góðri stund
HK-stúlkur á góðri stund mbl.is/Golli

HK lagði KA tvívegis á Íslandsmótinu í blaki í Fagralundi í Kópavogi í gærkvöldi, fyrst í kvennaflokki og síðan í karlaflokki.

Stúlkurnar í HK áttu ekki í teljandi vandræðum gegn norðanstúlkum, unnu 25:5, 25:17 og 25:22. Laufey Sigmundsdóttir var stigahæst hjá HK með 14 stig og Ásta Lilja Harðardóttir fékk sex stig fyrir leik sinn með KA.

Strákarnir í HK unnu einnig 3:0, 25:15, 25:16 og 25:18. Fannar Grétarsson fékk 16 stig hjá HK og Theódór Þorvaldsson 14 en hjá KA var Hilmar Sigurjónsson stighæstur með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert