Tvöfaldur bikarsigur ÍR-inga

ÍR varð tvöfaldur bikarmeistari í frjálsíþróttum innanhúss í dag en félagið sigraði bæði í karla- og kvennaflokki í bikarkeppninni í Kaplakrika, og þar með líka í samanlagðri stigakeppni félaganna.

Í kvennakeppninni fékk ÍR 66 stig, FH 55, Norðurland 50, Breiðablik 33, Fjölnir/Afturelding 29 og Ármann 5 stig.

Í karlakeppninni fékk ÍR 67 stig, FH 57, Norðurland 40, Breiðablik 34, Ármann 26 og Fjölnir/Afturelding 23 stig.

Samanlagt fékk ÍR 133 stig FH 112, Norðurland 90, Breiðablik 67, Fjölnir/Afturelding 52 og Ármann 31 stig.

Nánar var fjallað um gang mála í bikarkeppninni hér á mbl.is fyrr í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert