Nadal á réttri leið

Rafael Nadal fagnar sigrinum í Buenos Aires.
Rafael Nadal fagnar sigrinum í Buenos Aires. AFP

Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal krækti í sinn fyrsta titil á árinu þegar hann sigraði heimamanninn Juan Monaco, 6:4 og 6:1, í úrslitaleik opna argentínska mótsins í Buenos Aires í gærkvöld.

Nadal átti í miklum vandræðum á síðasta ári vegna meiðsla en virðist nú á réttri leið á ný. Þetta var hans 65. mótssigur á ferlinum og jafnframt sá 46. á leirvelli, en með því síðarnefnda jafnaði hann met Argentínumannsins Guillermo Vilas, sem var á meðal áhorfenda í Buenos Aires.

Það gekk ekki þrautalaust að ljúka leiknum því eftir 14 mínútna leik þurfti að fresta honum í tæpan klukkutíma vegna úrhellisrigningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert