Birkir óstöðvandi í Bandaríkjunum

Birkir á fullri ferð.
Birkir á fullri ferð. Mynd/Aumathletics.com

Birkir Gunnarsson landsliðsmaður í tennis var valinn tennisspilari vikunnar í suðurríkja háskóladeildinni (Southern States Athletic Conference Men’s Tennis Player of the Week) fyrir góða frammistöðu með liðinu sínu vikuna 16.-22 mars en Birkir spilar fyrir Auburn University í Montgomery.

Í frétt á vef Tennissambands Íslands kemur fram að lið Birkis hafi spilað gegn þremur öðrum háskólaliðum þessa vikuna og hafi Birkir unnið alla sína leiki í bæði einliða- og tvíliðaleik.

Lið Birkis spilaði gegn þremur öðrum háskólaliðum þessa vikuna og vann alla sína leiki, bæði í einliða- og tvíliðaleik.

Í deildinni hefur Birkir unnið alla sex leiki sína og einungis tapað þrettán lotum í þeim leikjum. Hann er einnig ósigraður í tvíliðaleik en þar hefur hann unnið alla sjö leiki sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert