Mark og Rósa Íslandsmeistarar í skvassi

Mark D. Wieland varð Íslandsmeistari karla í skvassi í fyrsta sinn og Rósa Jónsdóttir Íslandsmeistari kvenna í annað sinn en Íslandsmótinu lauk í Veggsporti í dag.

Mark sigraði Róbert Fannar Halldórsson, 3:1, í úrslitaleik karla en Róbert freistaði þess að verða meistari í áttunda sinn. Matthías Jónsson vann Gunnar Þórðarson 3:1 í leik um þriðja sætið.

Rósa sigraði Dagnýju Ívarsdóttur í úrslitaleik í kvennaflokki og Anna Margrét Guðmundsdóttir hafnaði í þriðja sæti.

Haraldur Líndal Pétursson vann Inga Pál Sigurðsson 3:1 í úrslitaleik í A-flokki karla og Einar Sturla Mönichen hafnaði í þriðja sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert