Ásdís á Demantamót í Ósló

Ásdís Hjálmsdóttir.
Ásdís Hjálmsdóttir. mbl.is/Eva Björk

Ásdís Hjálmsdóttir, Íslandsmethafi í spjótkasti, hefur þegið boð um að keppa á Demantamótinu sem fram fer í Ósló þann 11. júní næstkomandi.

Ásdís greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hún tilgreinir fyrstu mót sumarsins hjá sér. Ásdís byrjar á því að keppa í Riga-bikarnum í Lettlandi 28. maí og kemur svo hingað til lands og keppir á Smáþjóðaleikunum 2. júní áður en hún heldur til Noregs.

Ásdís er þessa dagana í æfingabúðum á Kanaríeyjum og hefur nú náð góðum bata af handarbroti fyrr í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert